Árni lést á 97. aldursári og eðli málsins samkvæmt þurfti hann oft að standa yfir moldum náinna ættingja og vina. Hann greip gjarnan í pennann ef hann fann hjá sér þörf og setti niður á blað minningagreinar. Einnig var oft leitað til hans þegar rifja þurfti upp kynni af fólki frá fyrri hluta 20. aldar.
