Í upphafi var sagt frá Hrs. Borgarfjarðar sem var undanfari Hrs. V. og þar nefndir þeir menn sem komu við sögu þar á meðal þeir sem voru í stjórn Hrs. Borgarfj. Ekki er ástæða til að endurtaka það í þessum þætti heldur verða nefndir einungis þeir menn sem setið hafa í stjórn Hrs. V. frá upphafi ásamt endurskoðendum.
Formenn Hrs. V. hafa verið þessir:
Símon Teitsson, Borgarnesi 1964-1975
Árni Guðmundsson, Beigalda 1975-1987
Guðmundur Sigurðsson, Hvanneyri 1987-1993
Bjarni Marinósson, Skáney 1993-
Gjaldkerar hafa verið:
Leifur Kr. Jóhannesson, Stykkishólmi 1964-1977
Ólafur Sigurbjörnsson, Akranesi 1977-1991
Marteinn Njálsson, Vestri-Leirárgörðum 1991-2002
Gísli Guðmundsson, Grundarfirði, 2002-
Ritarar hafa verið:
Marinó Jakobsson, Skáney 1964-1976
Skúli Kristjónsson, Svignaskarði 1976-1979
Haukur Sveinbjörnsson, Snorrastöðum 1979-1989
Tryggvi Gunnarsson, Brimilsvöllum 1989-1996
Gísli Guðmundsson, Grundarfirði 1996-2002
Guðlaugur Antonsson, Hvanneyri 2002-
Árið 1975 voru fyrst kosnir meðstjórnendur samkvæmt breytingum á lögum um fjölgun stjórnarmanna úr þremur í fimm.
Meðstjórnendur:
Ólafur Sigurbjörnsson, Akranesi 1975-1977
Hallur Jónsson, Búðardal 1975-1976. Hann starfaði til ársloka 1976 en þá um áramótin tók Björn Jóhannesson, Laugavöllum við, fyrst sem varamaður til næsta aðalfundar.
Björn Jóhannesson, Laugavöllum 1977-1982
Haukur Sveinbjörnsson, Snorrastöðum 1977-1979
Skúli Kristjónsson, Svignaskarði 1979-1993
Gísli Höskuldsson, Hofsstöðum 1982-1994
Gísli Gíslason, Stangarholti 1994-2000
Guðlaugur Antonsson, Hvanneyri 2000-2002
Ingibergur Jónsson, Akranesi 2002-
Varaformenn:
Einar E. Gíslason, Hesti 1964-1974
Árni Guðmundsson, Beigalda 1974-1975
Láðst hafði að kjósa varaformann á aðalfundi 1975
Ólafur Kristjánsson, Ólafsvík 1976-1992
Árið 1992 var sú breyting gerð á lögum sambandsins að varaformaður skyldi sitja í aðalstjórn. Eftir það er einn meðstjórnandi.
Varaformenn sem setið hafa í aðastjórn:
Marteinn Njálsson, Vestri-Leirárgörðum 1992-1993
Skúli Kristjánsson, Svignaskarði 1993-1997
Sigbjörn Bjönsson, Lundum 1997-
Varagjaldkerar:
Björn Jóhannesson, Laugavöllum 1964-1968
Haukur Sveinbjörnsson, Snorrastöðum 1968-1977
Jósep Rósinkarsson, Fjarðarhorni 1977-1980
Jón Sigurðsson, Skipanesi 1980 –1989
Marteinn Njálsson, Vestri-Leirárgörðum 1989-1991
Helgi Bergþórsson, Súlunesi 1991-1992
Vararitarar:
Haukur Sveinbjörnsson, Snorrastöðum 1964-1969
Björn Jóhannesson, Laugavöllum 1968-1977
Jósep Rósinkarsson, Fjarðarhorni 1980-1986
Þorvaldur Guðnason, Skarði Lund. 1986-1989
Gústav Ívarsson 1989-1992
Eftir lagabreytingar 1992 urðu varamenn þrír og enginn sérstakur varamaður aðalmanns.
Varameðstjórnendur:
Skúli Kristjónsson, Svignaskarði 1975-1976
Jósep Rósinkarsson, Fjarðarhorni 1975-1977
Ágúst Oddsson, Akranesi 1975- ?
Bjarni Marinósson, Skáney 1976 – ?
Gísli Höskuldsson, Hofsstöðum 1979-1982
Sigurður Halldórsson, Krossi 1979-1985
Guðmundur Sigurðsson, Hvanneyri 1985-1987
Varastjórn:
Gísli Gíslason, Stangarholti 1993-1994
Gústaf Ívarsson 1994-1996
Sigurður Oddur Ragnarsson, Oddsstöðum 1994-1996
Sigurður Halldórsson, Krossi 1994-
Georg J. Jónsson, Kjörseyri 1976-
Ingibergur Jónsson, Akranesi 1996-2002
Smári Njálsson, Akranesi 2002-
Vegna breytinga á lögum sambandsins árið 1975 skipti stjórnin með sér verkum á næstu stjórnarfundum eftir aðalfundi. Stundum hefur láðst að skipta verkum með varastjórninni. Því er það að skipting á varastjórninni er ónákvæmt á árunum 1975-1992 þegar kosningareglur eru færðar í betra horf. En mestu máli skiptir að vitað er um alla sem kosnir voru, en sumstaðar óljós verkaskipti þeirra á milli.
Endurskoðendur:
Friðgeir Friðjónsson frá Hofsstöðum 1964-1994
Árni Guðmundsson, Beigalda 1964-1974
Skjöldur Stefánsson, Búðardal 1974-1978
Leópold Jóhannesson, Hreðavatnsskála 1978-1987
Sveinn Finnsson, Eskiholti 1987-
Jóhann Oddsson, Steinum 1994-
Varaendurskoðendur:
Andrés Jóhannesson 1964-1971
Ragnar Jónatansson 1964-1971
Skúli Kristjónsson, Svignaskarði 1971-1974
Hjörleifur Guðmundsson, Heggsstöðum 1971-1974
Helgi Finnbogason, Gerðubergi 1974-1976
Leópold Jóhannesson, Hreðavatnsskála 1974-1978
Gísli Höskuldsson, Hofsstöðum 1976-1979
Sveinn Finnsson, Eskiholti 1979-1987
Frá 1979 til 1987 var kosinn einn varaendurskoðandi.
Jóhann Oddsson, Steinum 1987-1994
Bjarni Marinósson, Skáney 1987-1993
Gunnar Örn Guðmundsson, Hvanneyri 1993-
Ingimar Sveinsson, Hvanneyri 1994-
Í 10 gr. laga sambandsins sem samþykkt voru á stofnfundi 31. okt. 1964 segir, að kjósa eigi einn af búfjárræktarráðunautum á sambandssvæðinu með tillögurétti og neitunarvaldi til jafns við stjórnina um allt er varðar stóðhestakaup. Alltaf var Guðmundur Pétursson Gullberastöðum, búfjárræktarráðunautur Búnaðarsambands Borgarfjarðar á þessum árum kosinn til þessa starfs. Árið 1975 baðst Guðmundur undan endurkosningu vegna aðstæðna sem skapast höfðu og annars staðar er sagt frá. Ekki var kosið í hans stað, enda upplýst á fundinum að önnur hrossaræktarsambönd hefðu ekki ráðunaut á sínum snærum.
Þegar samantekt um stjórnir og endurskoðendur hrossaræktarsambandanna tveggja er athuguð á samtals 50 ára starfsferli þeirra kemur í ljós ýmislegt forvitnilegt og óvenjulegt sem trúlega er einsdæmi. Bent skal á tvennt. Hið fyrra er að aldrei hefur kona verið í stjórn eða öðrum trúnaðarstörfum hjá þessum samtökum. Í öðru lagi hvað menn hafa setið lengi að störfum, t.d. Friðgeir Friðjónsson sem var endurskoðandi reikninga sambandsins í 30 ár og var fundarstjóri svo að segja allra aðalfunda frá 1975 til 1994 eða meðan hans naut við.
Sveinn Finnsson er búinn að vera vara- og aðalendurskoðandi i samtals 25 ár og er enn endurskoðandi. Þessi tvö dæmi eru tekin af handahófi og margir hafa starfað lengur. Ég læt lesendur um að athuga þetta nánar, hver fyrir sig.